Lét greipar sópa meðan íbúarnir voru heima

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið en þjófurinn fannst ekki.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið en þjófurinn fannst ekki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þjófur braust inn í íbúð í Laugardalnum og lét greipar sópa á meðan þau sem búa í íbúðinni voru heima í dag.

Þjófurinn lét sig hverfa með þýfið er hann varð var við íbúana. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið en þjófurinn fannst ekki.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í dagbók lögreglu í dag. 

Þar segir einnig frá öðru innbroti og þjófnaði í geymslu í sama hverfi. Ekki er vitað hver var þar að verki.

Þá var tilkynnt um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur. Gerandinn var í annarlegu ástandi, handtekinn og vistaður í fangageymslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »