Telja Jón hafa verið myrtan fyrir mistök

Jón Þröstur Jónsson fór til Dublin til að taka þátt …
Jón Þröstur Jónsson fór til Dublin til að taka þátt í pókermóti í byrj­un fe­brú­ar árið 2019. Ekkert hefur til hans spurst síðan. Ljósmynd/Aðsend

Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar telur hugsanlegt að Jón hafi verið myrtur af launuðum leigumorðingja í Dyflinni á Írlandi fyrir mistök. Leigumorðingjanum hafi verið ætlað að myrða annan Íslending sem heimsótti Írland á sama tíma.

Þetta kemur fram í umfjöllun Irish Times um málið í gær.

Lög­reglu­menn frá Írlandi eru vænt­an­leg­ir til Íslands í næstu viku í tengsl­um við rann­sóknina á hvarfi Jóns Þrast­ar en síðast er vitað um ferðir hans í Dyfl­inni í fe­brú­ar 2019.

Í til­kynn­ingu frá íslensku lög­reglunni seg­ir að samþykkt rétt­ar­beiðni liggi fyr­ir og til standi að taka skýrsl­ur af um 35 manns vegna máls­ins.

Til Dyflinnar til að taka þátt í pókermóti

Jón Þröstur hvarf sporlaust í heimsókn sinni til Dyflinnar til þess að taka þátt í pókermóti.

Írska lögreglan hefur nýlega sett aukinn þunga í rannsókn sína og meðal annars hafa verið framkvæmdar fjórar leitir í borginni undanfarna mánuði með aðstoð sporhunda.

Í umfjöllun Irish Times segir að írska lögreglan telji að á Íslandi sé fólk sem kunni að hafa vitneskju um hvarf Jóns Þrastar en vilji ekki ræða við lögreglu á Íslandi. Vonast írska lögreglan til þess að fólkið sé frekar tilbúið að ræða við írska lögreglumenn.

Endurnýjuð upplýsingabeiðni

Heimsókn lögreglumannanna írsku er í tengslum við endurnýjaða opinbera upplýsingabeiðni írsku lögreglunnar hér á landi í tengslum við málið en gert er ráð fyrir blaðamannafundi á Íslandi vegna þess.

Írskir og íslenskir lögreglumenn hittust þá nýlega í höfuðstöðvum Europol í Haag í Hollandi og mótuðu stefnu um aukinn þunga í rannsóknina.

Jón Þröstur fór gangandi frá hótelinu þar sem hann dvaldi og náðust af honum myndir með öryggismyndavél nærri inngangi hjúkrunarheimilis við hlið hótelsins.

Írska lögreglan hefur engar frekari upplýsingar um afdrif hans og engin ummerki um hann hafa nokkurn tímann fundist.

Hann hafði aldrei komið til Írlands áður og átti enga vini eða fjölskyldu þar, að því er fram kemur í umfjöllun Irish Times.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »