Óspennandi útileguveður um helgina

Búast má við einhverri úrkomu eða skúrum í öllum landshlutum …
Búast má við einhverri úrkomu eða skúrum í öllum landshlutum á sunnudaginn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Eiríkur Örn Jóhannesson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir erfitt að segja til um einn tiltekinn stað á landinu þar sem veður verður best um helgina.

„Það er almennt austlæg átt á landinu og það verður svolítill vindastrengur, sérstaklega við suðurströndina,“ segir Eiríkur í samtali við mbl.is.

Hann segir að á morgun geti þar vindhraði jafnvel náð 18 m/s. Víða á norðanverðu landinu sé líklegt að vindur verði á bilinu 5 til 13 m/s. Heldur hægari vindur verði á sunnudag.

Enginn landshluti sker sig sérstaklega úr

Á morgun rignir á suðurhluta landsins en búast má við einhverri úrkomu eða skúrum í öllum landshlutum á sunnudaginn. Þurrast gæti orðið á norðvesturhluta landsins á sunnudag.

Það er kannski ekkert mjög spennandi útileguveður um helgina?

„Nei, það er kannski ekkert rosalega spennandi, kannski enginn landshluti sem sker sig sérstaklega úr,“ segir Eiríkur. Skásta veðrið gæti þó verið í Húnavatnssýslunum og á Breiðafjarðarsvæðinu, þar megi samt búast við úrkomu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »