Í dag má búast við breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu, og skýjuðu veðri með köflum og stöku skúrum á víð og dreif.
Þá má búast við suðaustan 5-10 metrum á sekúndu í kvöld á Suður- og Vesturlandi með dálítilli vætu.
Á morgun má búast við austan 5-10 metrum á sekúndu en 13-18 metrum syðst. Víða má búast við bjartviðri framan af degi en að fari að rigna seinnipartinn, fyrst sunnan til.
Hiti verður á bilinu 8 til 17 stig, hlýjast á Suðausturlandi í dag en norðan- og vestanlands á morgun.