Réttlæti og ábyrgð: Vernd barna í Úkraínu er yfirskrift opins fundar á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og UNICEF á Íslandi. Fundurinn fer fram í Auðarsal Veröld - húsi Vigdísar.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér fyrir neðan.
Fram kemur í tilkynningu að innrásarstríð Rússlands í Úkraínu hafi valdið ómældum mannlegum þjáningum og stórfelldri eyðileggingu. Ólöglegt og kerfisbundið brottnám úkraínskra barna á hernumdum svæðum rússneska hersins hafi vakið hörð viðbrögð alþjóðasamfélagsins. Mikilvægt sé að ábyrgðarskylda og réttlæti sé tryggð vegna þeirra brota sem Rússland hefur framið.
„Stofnsetning tjónaskrár fyrir Úkraínu, sem var ein helsta niðurstaða leiðtogafundar Evrópuráðsins sem haldinn var í Reykjavík í maí 2023, tekur til eignaskemmda, manntjóns og alvarlegra meiðsla sem orðið hafa í stríði Rússlands í Úkraínu. Nú undirbýr tjónaskráin að taka sérstaklega fyrir brot sem framin hafa verið gegn börnum, þar á meðal ólögmætar brottvísanir. Þetta markar mikilvægt skref í að viðurkenna erfiða reynslu yngstu fórnarlambanna í stríðinu og leggja grunninn að framtíðarbótum.
Á þessum opna fundi verður varpað ljósi á mikilvægi ábyrgðarskyldu eftir stríðsátök og spurningum varpað fram um hvernig hægt sé að tryggja réttlæti fyrir úkraínsk börn? Hvað séu sanngjarnar bætur fyrir víðtæk brot sem framin hafa verið? Hvernig ríki og stofnanir geti hjálpað til við að breyta skrásettum tjónum í raunverulegan stuðning fyrir fórnarlömb,“ segir í tilkynningunni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur opnunarávarp.
Róbert Spanó, formaður tjónaskrár Evrópuráðsins fyrir Úkraínu, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sérstakur erindreka framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum, verða einnig með ávörp og þau taka að auki þátt í pallborðsumræðum í kjölfarið ásamt Yuliu Kyrpa, framkvæmdastjóra hjá AEQUO og stjórnarmanni hjá tjónaskrá Evrópuráðsins fyrir Úkraínu, og Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi.