„Þetta þykir okkur mikill ósómi“

Það er vissara að leita að salerni geti menn ekki …
Það er vissara að leita að salerni geti menn ekki haldið í sér en stundum bresta flóðgáttirnar utandyra. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa án efa þurft að láta spúla göturnar í kjölfar tíðra þvagláta. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Þorgeir/Colourbox

Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri um síðustu helgi. Margt fólk var í bæn­um, meðal ann­ars vegna Bíla­daga og júbíl­anta­hátíðar út­skrift­ar­ár­ganga Mennta­skól­ans á Ak­ur­eyri.

Fimmtán voru kærðir fyrir brot á lögreglusamþykkt þar sem þeir voru að kasta af sér vatni í miðbænum á Akureyri. Ölvun kom þar við sögu.

Þetta segir Jóhannes Sigfússon, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Norðurlandi eystra, í samtali við mbl.is.

„Þetta þykir okkur mikill ósómi og látum þetta ekki afskiptalaust ef við verðum vör við þetta. Fólk fær sektir fyrir þetta.“

360 mál skráð í dagbók lögreglu

„Við erum sæmilega sáttir við heildarútkomuna, miðað við fjölda í bænum og fyrri reynslu,“ segir Jóhannes og tekur skýrt fram að þar eigi hann við alvarleika brota, ekki fjölda. Til að mynda hefði ekkert mál verið skráð í dagbók lögreglu um helgina þar sem vopni hefði verið beitt.

Hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra voru 360 mál skráð í dagbók lögreglu frá hádegi á fimmtudeginum 12. júní og fram á mánudagsmorgun, 16. júní, sem telst mjög mikið.

„Inni í þessu eru líka hraðakstursmál sem koma inn í hraðamyndavél, þau voru 54, þannig að þetta eru samt 300 mál,“ segir Jóhannes.

Spurður um fjölda mála sem tengdust skemmtanahaldi helgarinnar segir hann umdæmið stórt og því erfitt að segja til um fjölda brota sem tengdust ákveðnum stöðum eða viðburðum.

„Þetta er allt Norðurland eystra sem eru fimm lögreglustöðvar og 23 þúsund ferkílómetrar.

Í dagbókina eru skráð öll mál sem koma upp í umdæminu okkar á þessu tímabili, en langflest eru á Akureyri og tengjast þessu skemmtanahaldi,“ svarar Jóhannes.

87 umferðarlagabrot áttu sér stað í umdæminu, meðal annars hraðakstursmál …
87 umferðarlagabrot áttu sér stað í umdæminu, meðal annars hraðakstursmál sem lögreglan tekur inni í bílum, ekki með hraðamyndavélum. Þau voru 62 talsins á þessu tímabili og hefur lögreglan meðal annars tölur upp á 146, 147, 153 og 158 kílómetra hraða. mbl.is/Þorgeir

Ók á 158 kílómetra hraða

Alls áttu 87 umferðarlagabrot sér stað í umdæminu á umræddu tímabili. Inni í því eru meðal annars hraðakstursmál sem lögreglan tekur inni í bílum, ekki með hraðamyndavélum. Þau voru 62 talsins á þessu tímabili og hefur lögreglan meðal annars tölur upp á 146, 147, 153 og 158 kílómetra hraða.

„Við erum alltaf á vegunum og það er ekki algengt að við séum að sjá svona tölur.“

Þrír voru stoppaðir fyrir að aka án ökuréttinda og höfðu þeir verið sviptir ökuréttindum.

Þá varð ein bílvelta á tímabilinu, tvö tilvik þar sem ökumaður var ölvaður við akstur og fimm minniháttar fíkniefnamál.

Lög um rafhlaupahjól, reiðhjól og hesta

Tvö slys urðu á rafhlaupahjólum þar sem ölvun kom við sögu.

„Þetta er orðið vandamál. Það er mikil fjölgun í slysum á rafhlaupahjólum, þar sem fólk er ölvað á hjólunum,“ segir Jóhannes.

Fólk virðist leyfa sér að nota rafhlaupahjól til að komast leiða sinna eftir að hafa drukkið áfengi, þótt það myndi ekki setjast fyrir aftan stýri á bíl.

„Þröskuldurinn er einhvers staðar annars staðar hjá fólki gagnvart þessu.

Það eru lög um þetta, þú meira að segja mátt ekki heldur vera ölvaður á reiðhjóli eða hesti.“

„Þetta er orðið vandamál. Það er mikil fjölgun í slysum …
„Þetta er orðið vandamál. Það er mikil fjölgun í slysum á rafhlaupahjólum, þar sem fólk er ölvað á hjólunum,“ segir Jóhannes. mbl.is/Sigurður Bogi

„Getum haft fólk mest í 24 tíma“

Eins og greint hefur verið frá fékk lögregla tilkynningu um tvö kynferðisbrot og tvær líkamsárásir á Akureyri um helgina. Af tveimur líkamsárásum var ein flokkuð sem alvarleg.

Fimm voru í haldi lög­reglu í tengsl­um við mál­in en hafa allir verið látnir lausir.

„Lögin eru bara þannig að við getum ekki hangið á fólki og getum haft fólk mest í 24 tíma í vistun, nema það sé gerð gæsluvarðhaldskrafa til að lengja þann tíma,“ segir Jóhannes.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »