Styður veiðigjaldafrumvarpið heilshugar

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingar segist styðja veiðigjaldafrumvarpið heilshugar.
Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingar segist styðja veiðigjaldafrumvarpið heilshugar. mbl.is/María Matthíasdóttir

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar, segist styðja veiðigjaldafrumvarpið heilshugar eins og það liggur fyrir í þinginu núna. Hann segir að það sé búið að mæta hans helstu áhyggjum. 

Helstu áhyggjur Víðis snéru að hraðanum á hækkun veiðigjalda, hvort útgerðin gæti borgað meira, aðkomu skattsins, afslætti minni- og meðalstóru útgerðanna og útreikningi makrílverðsins. Hann segir nefndina hafa mætt þessu öllu.

Víðir lýsti yfir áhyggjum af veiðigjaldafrumvarpinu á ráðstefnu um hækkun veiðigjalda sem haldin var í Vestmannaeyjum í byrjun júní.

Spurður út í gömul ummæli 

Hann segist hafa á ráðstefnunni verið spurður út í ummæli sín á opnum kosningafundi Samfylkingarinnar sem haldinn var í nóvember þar sem hann sagði flokkinn ætla í auðlindagjaldaumræðu og vinnu á lengri tíma.

„Síðan var ákveðið að fara aðra leið í því og málið fór í gegnum mikla fyrstu umræðu og svo fyrir nefndina,“ segir Víðir. Hann segir atvinnuveganefnd hafa fengið til sín rúmlega 50 gesti tengda umræðunni um veiðigjöld og það var mat nefndarinnar að málið væri tilbúið fyrir þinglega meðferð. Hann segir nefndina hafa komið til móts við þær áhyggjur sem fólk hafði á fundinum á Vestmannaeyjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »