„Ég stóð bara hérna úti á palli þegar þeir komu aðvífandi, fimm lögreglubílar,“ segir Reynir Þorsteinsson, eigandi Gunnubúðar á Raufarhöfn, en búðin hans er um 20 metra frá húsi þar sem lögregluaðgerðir í tengslum við fíkniefnaframleiðslu fóru fram í gær.
„Það var mikill hasar hér. Fjöldinn allur af lögreglubílum og lögreglumönnum,“ segir Reynir aðspurður í samtali við mbl.is.
Segir hann lögreglumennina hafa farið inn í húsið um klukkan hálftíu um morguninn og þegar hann hafi lokað búðinni, um fimmleytið, hafi þeir enn verið þar inni.
Reynir segist vita til þess að einn erlendur maður búi í húsinu. Sá hefði komið annað slagið í búðina til hans að versla. Hann kveðst þó ekki hafa séð neinn hafa verið handtekinn.
Reynir bætir við að fyrir framan búðina sé hann með sólpall þar sem fólk geti tyllt sér á góðviðrisdögum og sá hefði verið þétt setinn af áhorfendum í gær.
„Fólk flykktist að. Þetta er lítið þorp og það fer ekkert framhjá þér ef það eru fimm lögreglubílar fyrir framan eitthvað hús," segir hann.
„Þannig að það áttu margir erindi í búðina í gær, skulum við segja.“