Töluvert tjón varð í Efnalauginni Björg þegar eldur kom þar upp í nótt. Kristinn Guðjónsson er einn eigandi efnalaugarinnar og sér um rekstur hennar. Hann segir eldsvoðann vera mikið áfall og að næstu dagar muni fara í að átta sig á stöðunni og hlúa að starfsfólki.
Í kjölfarið verður farið í að meta aðstæður.
„Þetta er hrikalegt áfall. Þetta er fjölskyldufyrirtæki frá árinu 1953 og manni þykir ótrúlega vænt um það. Okkur helst vel að starfsfólki og þurfum að hlúa að því,“ segir Kristinn.
Á öðrum tímanum í nótt voru allar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út vegna eldsins. Vel tókst að ráða við hann og hafði slökkviliðið lokið starfi sínu á vettvangi klukkan fjögur í nótt.
Lögreglan fer með rannsókn málsins en að sögn Ásmundar Rúnars Gylfasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, mun tæknideild lögreglu skoða vettvanginn í dag. Eitt af því sem þeir munu skoða eru möguleg eldsupptök.
Efnalaugin er þriðju kynslóðar fjölskyldufyrirtæki og hefur verið starfrækt frá árinu 1953.
Kristinn hefur ekki enn komist inn í efnalaugina en hann fór á vettvang í nótt þegar slökkviliðið var enn að störfum.
Eigendur geta ekki farið inn í efnalaugina fyrr en tæknideild hefur skoðað vettvanginn. Kristinn býst við að það klárist í dag og í kjölfarið geti hann farið inn og metið tjónið með tryggingafélagi.