Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, segir hótanir í garð lögreglumanna síalgengari og raunar hafi hann sjálfur orðið fyrir barðinu á þeim. Þannig var glænýr bíll í hans eigu sprautaður með lakkbrúsa í desember árið 2023.
„Þá var komið að heimili mínu og bíllinn spreyjaður með lakki. Þetta var skemmdaverk og mér var ekki beint hótað,“ segir Grímur í samtali við Dagmál mbl.is.
Engin skilaboð voru rituð með lakkinu heldur var einungis um skemmdarverk að ræða. Hann segir engu að síður óþægilegt að upplifa svona.
„Það var bara tæmdur einhver spreybrúsi á bílinn minn sem ég var búinn að eiga í viku. Þetta situr að einhverju leyti í fólki. Maður verður ekki endilega hræddur en maður er ekki bara einn í heimili. En þetta getur setið í manni og skapað óöryggi,“ segir Grímur.
Eins segir Grímur frá því að þegar verið var að rannsaka Rauðagerðismálið hafi lögreglan verið viss um að fylgst væri með lögreglumönnum. Málið var sérstætt fyrir þær sakir að glæpahópur eða glæpahópar virtust eiga aðild að manndrápi fyrir framan hús í Rauðagerði. Mikil rannsókn var gerð og lögreglumenn héldu spilunum þétt að sér.
„Í Rauðgerðismálinu vorum við viss um það að verið væri að fylgjast með lögreglumönnum. Einn starfsmaður upplifði það að honum var veitt eftirför,“ segir Grímur.