Vatn lak á milli hæða

Slökkviliðið fór í útkall í Hafnarfjörðinn.
Slökkviliðið fór í útkall í Hafnarfjörðinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út upp úr klukkan eitt í nótt vegna vatnsleka í einbýlishúsi í Hafnarfirði.

Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hafði klósettkassi lekið með þeim afleiðingum að vatn lak á milli hæða og þurfi slökkviliðið að hreinsa upp úr kjallara hússins.

Eldur kviknaði í bíl

Eldur kviknaði í húddi bíls við Nettó í Þönglabakka um hálftíuleytið í gærkvöldi. Verið var að draga bílinn á verkstæði þegar eldurinn kviknaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »