Skúringatæki festist á segulómtæki Landspítalans

Segulómtækið hefur verið ónothæft í allan dag.
Segulómtækið hefur verið ónothæft í allan dag. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson

Skúringatæki festist á segulómtæki Landspítalans við Hringbraut í gærkvöld. Tækið hefur verið óvirkt í dag en unnið er að því að losa skúringatækið af vélinni.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum atvikaðist óhappið þannig að starfsmaður í ræstingum fór fyrir mistök með skúringatæki inn í segulómherbergi Landspítalans með þeim afleiðingum að skúringatækið festist við segulómtækið.

Í fyrsta sinn sem slíkt slys gerist

Segulómtækið er það eina á spítalanum en tvö slík tæki eru á Landspítalanum í Fossvogi.

Sjúklingar sem þurfa nauðsynlega á segulómun að halda verða fluttir í Fossvog, segir staðgengill upplýsingafulltrúa Landspítalans í samtali við mbl.is.

Unnið er að losun skúringatækisins af segulómvélinni en ekki liggur fyrir hversu langan tíma það tekur. Er þetta í fyrsta sinn sem óhapp af þessu tagi gerist á Landspítalanum, segir staðgengill upplýsingafulltrúa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »