Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Honda CR-V-bíl með skráningarnúmerinu PS-778. Sást bíllinn á Flúðum síðastliðna nótt.
Bíllinn er ljósgrár, árgerð 2006.
Þeir sem hafa orðið varir við bílinn eða vita hvar hann er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að láta lögreglu vita strax í síma 112.