„Er það ekki svolítið skrítið ef allir eiga að vera jafnir fyrir lögum að fyrirtækið Heinemann sé ekki eins jafnt og við heldur jafnara?“ segir Arnar Sigurðsson, áfengiskaupmaður í Sante.
Forsvarsmenn Sante hafa skrifað til fjármálaráðuneytisins og óskað eftir afstöðu ráðuneytisins til undanþága frá lögbundnum takmörkunum á áfengissölu. Tilefni skrifanna er að þýska fyrirtækið Heinemann tók nýverið við rekstri fríhafnarverslunarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Arnar og samstarfsmenn hans voru ósáttir við svör ráðuneytisins, sögðu að spurningum þeirra væri ekki svarað og bréfið væri þar að auki lögfræðilega ónákvæmt. Því ítrekuðu þeir erindi sitt með öðru bréfi í byrjun vikunnar.
Arnar segir í samtali við Morgunblaðið að fyrirkomulag áfengissölu á Íslandi feli í sér þá niðurstöðu að einkaaðilum sé ekki treystandi til að selja áfengi. „Nema þeir heiti Heinemann,“ segir hann.
„Nú vill þannig til að einhver glannalegasta framsetning á áfengisbúð á landinu er í Leifsstöð. Þar eru áfengisauglýsingar uppi um alla veggi. Í raun er búið að breyta fríhöfninni í einhvers konar áfengis-svipugöng, enda þurfa allir að ganga þar í gegnum.“
„Hvað varðar brot á atvinnufrelsi (75. gr.) stenst núverandi fyrirkomulag áfengissölu ekki meðalhófspróf sem beita þarf við mat á takmörkunum á atvinnufrelsi.
Þegar markmið áfengislaga er lýðheilsuvernd í gegnum einkarétt ÁTVR verður að spyrja hvort nauðsynlegt sé að banna einkaaðilum áfengissölu alls staðar eða bara sumstaðar?
Sömuleiðis að ef einkaaðilar geta selt áfengi á ábyrgan hátt í fríhöfn, hvers vegna ekki annars staðar?“ segir í bréfi forsvarsmanna Sante til fjármálaráðuneytisins.
Arnar segir að í tollalögum segi að heimilt sé að selja áfengi í tollfrjálsum verslunum sem séu í meirihlutaeigu ríkisins.
„Heinemann er hvorki að hluta til né í meirihlutaeigu ríkisins. Hvernig má það vera að Heinemann sé treystandi til að selja áfengi í smásölu en ekki Högum eða okkur?“ spyr kaupmaðurinn.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.