Milljón króna dagsektir lagðar á SVEIT

Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri SVEIT.
Einar Bárðarson er framkvæmdastjóri SVEIT. Ljósmynd/SVEIT

Samkeppniseftirlitið tók í gær ákvörðun um að leggja dagsektir upp á eina milljón króna á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT.

Samkvæmt ákvörðuninni hefur SVEIT brotið gegn 19. gr. samkeppnislaga með því að vanrækja skyldu sína til að afhenda gögn er meðal annars varða stéttarfélagið Virðingu. Aðrir aðilar sem óskað hefur verið gagna frá hafa þegar afhent þau en SVEIT hefur ekki orðið við óskum Samkeppniseftirlitsins.

SVEIT mun því þurfa að greiða eina milljón króna í dagsektir uns gögnin verða afhent.

Verkalýðshreyfingin kvartaði

Rannsókn málsins hófst í kjölfar þess að Samkeppniseftirlitinu barst kvörtun frá ASÍ, Eflingu og Starfsgreinasambandinu þar sem haldið var fram að gerð SVEIT á einhliða kjarasamningum við Virðingu hafi farið gegn samkeppnislögum.

Í kvörtuninni var því haldið fram að Virðing væri „gervistéttarfélag“.

Í kjölfarið óskaði Samkeppniseftirlitið eftir umræddum gögnum sem SVEIT hefur ekki afhent.

Kæra til áfrýjunarnefndar

SVEIT greinir frá því í tilkynningu að samtökin telji málið ekki eiga heima á borði Samkeppniseftirlitsins. Einnig telja samtökin að stéttarfélögin sem kvörtuðu geti ekki átt aðild að málinu.

Samkeppniseftirlitið hefur ekki fallist á þau sjónarmið og hefur því kært þann anga málsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

SVEIT segist í tilkynningunni hafa lýst því yfir við Samkeppniseftirlitið að gögnin verði afhent þegar úrskurður liggur fyrir hjá áfrýjunarnefndinni sem segir ákvæði samkeppnislaga geta átt við um gerð kjarasamninga og að stéttarfélög eigi aðild að máli.

Einnig hyggst SVEIT kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um álagningu dagsektanna sjálfra og verða þær ekki lagðar á fyrr en niðurstaða liggur fyrir hjá áfrýjunarnefndinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »