Embætti landlæknis hefur svipt Guðmund Karl Sveinbjörnsson lækningaleyfi. Hann krefst endurmats á sviptingunni.
Guðmundur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni, hvar hann gengur undir nafninu Kalli Snæ. Hann segir bréf þess efnis að hann væri sviptur leyfi hafa verið sent þann 5. júní.
Guðmundur útlistar á facebook helstu ástæður sem honum voru gefnar fyrir sviptingunni.
Þar talar Guðmundur um ítrekaðar opinberar yfirlýsingar sem hafi grafið undan trausti á heilbrigðisþjónustu, tengsl hans við umdeilda og vísindalega órökstudda hópa á borð við World Council for Health og North Group og endurteknar fullyrðingar um skaða bóluefna án staðfestrar vísindalegrar stoðar.
Ljóst er af Facebook-færslu Guðmundar að hann muni ekki una niðurstöðu landlæknis. Þar hefur hann birt bréf sitt til embættisins og umboðsmanns Alþingis sem er dagsett í gær. Bréfið og færslu Guðmundar má sjá hér að neðan.
Í bréfinu krefst hann endurmats á sviptingunni, en hann segir hann ákvörðunina ekki standast stjórnsýslulegar kröfur. Þá telur Guðmundur einnig upp ýmsar ástæður fyrir ógildingu sviptingarinnar og kallar eftir frekari skýringum frá embættinu. Hann segir í bréfinu fullyrðingar embættisins vera „meiðandi ásakanir“ og „misnotkun á rétti til að tjá sig.“
Guðmundur hefur í gegnum tíðina viðrað ýmsar skoðanir sem segja má að séu á skjön við almennar leiðbeiningar landlæknis. Til dæmis hefur Guðmundur talað fyrir ágæti rafretta og notkun lyfsins Ivermectin gegn Covid.