Nefhjól flugvélar féll til jarðar við Austurvöll

Alþingi er við Austurvöll.
Alþingi er við Austurvöll. mbl.is/Kristinn Magnússon

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virkjaði viðbragð vegna kennsluflugvélar sem missti nefhjól í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli nú á sjöunda tímanum. Hjólið lenti við Austurvöll. 

Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is en RÚV greindi fyrst frá. 

Vélin er lent en tveir farþegar voru um borð vélarinnar. Farþegarnir eru báðir heilir á húfi. 

Einhverjar tafir

Lögreglan fer með rannsókn málsins auk rannsóknarnefndar samgönguslysa. Vélin er enn á Reykjavíkurflugvelli og hafa einhverjar tafir orðið vegna lokunar flugbrauta. 

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að um það leyti sem kennsluvélin lenti á flugvellinum hafi verið áætlað flug til Egilsstaða.

Farþegar þurftu að fara frá borði en vélin fer í loftið þegar austur-vestur flugbrautin verður opnuð á ný. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »