Líklegt er að meirihluti atvinnuveganefndar leggi til breytingar á veiðigjaldafrumvarpinu að sögn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og nefndarmanns í nefndinni.
Atvinnuveganefnd fundaði í morgun og umræða um veiðigjald var meðal þess sem var á dagskrá fundarins.
Mörg mál liggja fyrir hjá nefndinni þessa stundina en starfsáætlun þingsins var felld úr gildi í vikunni og því hefur nefndin líklega lengri tíma en búist var við til þess að vinna málin.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er 2. varaformaður nefndarinnar, sagði í mbl.is í lok maímánaðar að hann teldi að þeir gestir sem kæmu fyrir nefndina töluðu fyrir daufum eyrum meirihluta nefndarmanna.
Njáll er ekki á sama máli og flokksbróðir hans en hann telur að meirihluti nefndarinnar komi til með að taka tillit til þeirra athugasemda sem borist hafa og leggi því fram breytingartillögu.
„Ég held það, miðað við þá umsagnaraðila sem komið hafa fyrir nefndina tel ég að það sé ekki annað hægt en að taka tillit til þeirra sjónarmiða sem hafa komið þar fram. Þegar menn sjá hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa á rekstur fyrirtækjanna er ekki annað hægt en að sjá þetta í eðlilegra ljósi,“ segir Njáll í samtali við mbl.is aðspurður hvort hann telji meirihlutann í nefndinni koma til með að skila inn tillögu að breytingum á frumvarpinu.
Eiríkur Björn Björgvinsson, 1. varaformaður nefndarinnar, segir í samtali við mbl.is að umræða um veiðigjöldin sé komin langt á leið innan nefndarinnar og að það styttist í það að atvinnuveganefnd skili inn áliti sínu. Hann telur þó ekki tímabært að segja til um hvers eðlis álitið verður.