Hver fær 37 milljónir í sinn hlut

Fyrsti vinningur heldur áfram að stækka í EuroJackpot.
Fyrsti vinningur heldur áfram að stækka í EuroJackpot. mbl.is/Karítas

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot, en tæplega 3,3 milljarðar voru í pottinum.

Fimm miðahafar voru þó með 2. vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 37 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir fimm voru keyptir í Danmörku, Þýskalandi, Noregi, Grikklandi og Póllandi.

Þá voru níu miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 11,6 milljónir króna í sinn hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »