Bjart með köflum og hlýjast á Vesturlandi

Kort Veðurstofunnar klukkan 14 í dag.
Kort Veðurstofunnar klukkan 14 í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Í dag verður austlæg eða breytileg átt á landinu. Það verður bjart með köflum, en líkur á skúrum síðdegis og þá einkum inn til landsins. Hitinn verður á bilinu 6 til 14 stig og verður hlýjast á Vesturlandi.

Á morgun verður austan 5-10 m/s en 10-15 m/s við suðurströndina. Víða verður þurrt og bjart veður en það fer að rigna sunnanlands seinni partinn og einnig á Austfjörðum um kvöldið. Hitinn verður 7 til 15 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »