Icelandair hefur nú sett vaxandi þunga í markaðssetningu og ferðir til Grænlands og Færeyja, en félagið hóf í síðustu viku Grænlandsflug á Boeing 737 MAX 8, sem tekur 160 manns í sæti. Hefur félagið hingað til flogið til og frá Nuuk á 37 sæta Dash 8 Q200, og munar því um minna.
„Grænland er okkur afar mikilvægur markaður, en þar eru aðstæður í flugi nú að breytast mjög hratt og því munum við að sjálfsögðu fylgjast með,“ segir Tómas Ingason, framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs hjá Icelandair, í samtali við Morgunblaðið í dag. Hann segir þróunina á Grænlandi vera mjög áhugaverða en að mikilvægt sé að byggja þar upp innviði til þess að flug og ferðaþjónusta komist þar vel á legg.
Tómas segir það sama gilda um Færeyjar, en Icelandair hóf þangað flug á síðasta ári. „Færeyjar eru að koma vel út í okkar starfsemi,“ segir Tómas, en markaðsáætlun Icelandair snýst m.a. um að kynna Færeyjar sem áfangastað fyrir Bandaríkjamenn. Icelandair mun hefja flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust.
Lesa má nánar um málið á bls. 10 í Morgunblaðinu og í Mogga-appinu í dag
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.