Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi þingmaður, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra í kjölfar þess að Katrín M. Guðjónsdóttir baðst lausnar frá störfum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Ásamt því að hafa verið áður á Alþingi fyrir Samfylkinguna þá sat hann í bankaráði Seðlabanka Íslands í fjögur ár. Einnig hefur hann gegnt formennsku í viðskiptanefnd Alþingis, Evrópunefnd forsætisráðherra og í framkvæmdasjóði aldraða.
Ágúst er menntaður lögfræðingur, hagfræðingur og stjórnsýslufræðingur og á sæti í stjórn Dýraverndarsambands Íslands og Evrópuhreyfingarinnar.
Ágúst hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 13. júní næstkomandi.