Malbikað á nokkrum stöðum annað kvöld

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og …
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stefnt er á malbikunarframkvæmdir á þriðjudagskvöld ef veður leyfir á nokkrum stöðum á Reykjanesbraut. 

Malbika á Reykjanesbraut á milli Arnarnesvegar og Fífuhvammsvegar. Kaflinn er um 400 metrar að lengd og verður þrengt niður í eina akrein. Umferð verður send um hjáleið um Bæjarlind og Fífuhvammsveg.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 23:00 til kl. 04:00 aðfaranótt miðvikudagsins 11. júní.

Þá er stefnt á að fræsa Reykjanesbraut á milli Arnarnesvegar og Kaplakrika í suðurátt.

Kaflinn er um 2 km að lengd. Þrengt verður niður í eina akrein og í framhaldinu verður umferð send hjáleið um Arnarnesveg og Hafnarfjarðarveg.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 til kl. 03:00 aðfaranótt miðvikudagsins 11. júní.

Að lokukm er stefnt á að malbika Reykjanesbraut frá afleggjara við Vífilsstaðaveg í norðurátt.

Kaflinn er um 560 metrar að lengd. Þrengt verður niður í eina akrein og umferð send hjáleið um hringtorg á Vífilsstaðavegi.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »