Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri hjá Landi og skógi, segir útlit fyrir að lúpínan eigi ekki eftir að hafa það gott í sumar.
„Það er búið að vera svo mikið rok að blómin hafa sjálfsagt orðið fyrir einhverjum skaða og eiga erfiðara með að mynda fræ,“ segir Hreinn í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir lúpínubreiðurnar hafa þurft að berjast gegn vindi og það hafi áhrif á fræmyndun. „Humlurnar eru ekki mikið á sveimi í slíku veðri, svo að blómin frjóvgast síður.“
Hreinn segir lúpínuna hafa hopað sums staðar á landinu, sérstaklega þar sem hún sé búin að vera lengi.
„Það er ýmislegt sem fær hana til að hopa, til dæmis lirfurnar sem nærast á henni og éta hana hreinlega upp – mófetar, ertuyglur og skógbursti, svo nokkur dæmi séu nefnd.“
Þurrkatímabil hafa einnig sitt að segja. „Lúpínan heldur þó áfram að breiðast út á rýrt land, sanda og land sem hefur litla gróðurhulu, en það gerist frekar í bleytusumrum.“
Hann segir lúpínuna breiðast hraðar út á stöðum þar sem mikil úrkoma er og það lýsi sér til dæmis í því að lúpínan sé hærri og þéttari meðfram ströndum landsins. Lúpínan hopi hins vegar hratt á Norðurlandi og aðrar ágengar jurtir séu að taka yfir. Lúpína hefur nýst bændum til landgræðslu undanfarin ár, til að mynda í kringum Gunnarsholt á Suðurlandi. Þar hafði lúpínu verið sáð í örfoka land þar sem nú eru um 100 hektarar af kornökrum.
„Lúpínan breytir landinu úr sandi í nytjaland – hún er ekki alls staðar til bölvunar,“ segir Hreinn
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.