Eysteinn Guðni Guðnason áhugaljósmyndari birti nýverið færslu í hópnum Bakland ferðaþjónustunnar á Facebook, þar sem hann hvatti fólk til þess að birta myndir, sem það tekur á ferðalögum sínum í sumar, á Wikipedia, af stöðum á Íslandi sem hafa enga mynd.
Eysteinn tók saman þá staði á Íslandi sem eiga Wikipedia-síðu en enga mynd og bjó til kort á Google Earth. Það kort má nálgast hér.
Eysteinn segist hafa búið kortið til fyrir sjálfan sig en svo fundið leið til þess að deila því með öðrum.
Eysteinn hyggst taka punktana af kortinu þegar þeir hafi fengið mynd á Wikipedia. Markmið hans er að á endanum muni enginn punktur vera á kortinu.
Að sögn Eysteins geta Wikipedia-síður verið heilmikil landkynning. Það bæti bæði upplifun notenda Wikipedia að myndir séu á síðum, en heilli einnig þá ferðamenn sem séu að skoða hvaða staði þeir vilja heimsækja. „Myndir segja meira en þúsund orð,“ segir Eysteinn þegar hann er spurður að því af hverju honum þyki mikilvægt að Wikipedia-síður hafi myndir.
Hann segir það þó einnig skemmtilegt að sjá myndir sem hann hefur tekið á nýjum stöðum. Sjálfur hefur Eysteinn birt um 500-600 myndir á Wikipedia. Þær hafa farið víðar, þar sem þær eru undir svokölluðu „credit commons“-kerfi. Hann tekur dæmi um að mynd frá honum hafi verið notuð á rússneskum bæklingi.
Eysteinn bendir þó á að varast það að birta myndir af nýjum byggingum á Wikipedia. Nýjar byggingar eru oft höfundarréttarvarðar og oft flóknar reglur í kringum þær. Það getur því verið flókið mál að birta myndir af nýlegum mannvirkjum.
Eysteinn segist sjálfur hafa birt myndir og skrifað greinar á Wikipedia og hefur til að mynda skrifað eina slíka um þetta verkefni sem má sjá hér. Hann skrifar þó sérstaklega um staði á Íslandi á Wikipedia. Hann tók eftir því fyrir nokkru síðan að margar myndir vanti af stöðum, fólki og viðburðum á Íslandi. Hann nefnir 17. júní sem dæmi um viðburð sem hafi enga mynd á sinni Wikipedia-síðu.
Punktarnir á korti Eysteins, yfir staði sem vantar myndir á Wikipedia, dreifast fremur jafnt yfir allt landið. Hann segist sakna góðra mynda af þéttbýlum og nefnir þar Skagaströnd, Eskifjörð, Vopnafjörð en einnig Papey, Leirá og Reyðarvatn.
Eysteinn hvetur fólk til þess að hafa kortið við höndina á ferðalögum sínum í sumar og birta myndir af ferðalögum sínum á Wikipedia.