Engin tilfelli vasaþjófnaðar hafa verið tilkynnt á Skólavörðustíg og við Hallgrímskirkju síðan að varðturnar voru þar reistir. Í apríl og maí bárust 18 tilkynningar um vasaþjófnað.
Varðturnarnir voru reistir fyrir um þremur vikum. Guðmundur Pétur Guðmundsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is varðturnana hafa mikinn fælingarmátt.
Tvær tilkynningar hafa borist um vasaþjófnað frá tilkomu varðturnanna, tilfellin sem bárust voru bæði í miðborginni en fjærri varðturnunum.
Guðmundur segir turnana vera tilraunaverkefni til þriggja mánaða sem verði svo endurmetið.
Aðspurður segir hann varðturnana ekki komna til að vera. Lögreglan í samstarfi við Reykjavíkurborg ætlar að auka umfang öryggismyndavéla í miðborginni á komandi árum.
„Öryggismyndavélar voru ekki til staðar þarna. Þetta voru heitir staðir og mikið að gerast. Alls staðar þar sem fólk safnast saman og stoppar eru kjöraðstæður fyrir vasaþjófa,“ segir Guðmundur að lokum.