Ekki endilega spurt um heiðarleika

Jafningjafræðsla innan fangelsanna er algjör game changer, sérstaklega fyrir yngri stráka sem skortir góðar fyrirmyndir.

Strákarnir sem koma inn í fangelsin með jafningjafræðslu eru búnir að snúa við blaðinu og eru í dag að gera góða hluti. Þeir sýna fram á að það sé hægt að vera í heiðarleika, vera edrú, standa sig vel og öðlast allt aftur sem viðkomandi er búinn að missa – fjölskyldu, tengsl við börnin sín og maka til dæmis.

„Þetta eru góðar fyrirmyndir, og það er það sem þessum strákum vantar, það eru góðar fyrirmyndir, að sjá að þetta er hægt,“ segir Daní­el Rafn Guðmunds­son, en hann ræddi við Dag­mál mbl.is um fang­els­is­kerfið og kom jafningjafræðslan meðal annars til tals.

„Ganga vel og græða peninga“

Daníel hef­ur verið edrú í 10 ár, allt frá því að hann leitaði Guðs í litlu kirkj­unni á Staðar­felli og fékk um leið að finna upp­lif­un sem breytti öllu. Í dag fer hann með trúarlegan boðskap inn í fangelsin og gegnir þar einnig jafningjahlutverki.

Hann segir algengt að ungum strákum sem leiðist út í neyslu eða afbrot skorti góðar fyrirmyndir. Á yngri árum sé auðvelt að líta upp til þeirra sem séu að „meika það“ í þessum heimi, þó það sé ekki á heiðarlegan hátt.

„Það er líka það sem samfélagið segir okkur að gera. Það er að ganga vel og græða peninga og svona. Það er ekkert endilega spurt um hvort þetta sé alveg 100% heiðarlegt.

Þannig að fyrirmyndirnar eru oft brenglaðar.“

„Það er líka það sem samfélagið segir okkur að gera. …
„Það er líka það sem samfélagið segir okkur að gera. Það er að ganga vel og græða peninga og svona. Það er ekkert endilega spurt um hvort þetta sé alveg 100% heiðarlegt,“ segir Daníel. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »