Köruknattleiksþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson er mikið á milli tannanna á fólki þessa dagana í tengslum við íþróttafélagið Aþenu og þær þjálfunaraðferðir sem hann beitir.
Enginn deilir hins vegar um árangurinn af starfi hans og ungar stúlkur í Breiðholti, og raunar víðar að, flykkjast í starf Aþenu svo að eftir er tekið.
Brynjar Karl segir að lélegasta gagnrýni sem hann hafi orðið fyrir sé sú að hann sé málsvari einhverskonar elítu-þjálfunar þar sem aðeins sé unnið með þá allra færustu. Hann geri miklar kröfur til allra og að fólk komi úr gjörólíkum áttum inn í starfið hjá honum.
„Það er bara einhver mættur með staurfót og páfagauk á öxlinni og pabbi hans er einhver sjóræningi. Og það er bara öskrað jafn mikið á hann og besta veðhlaupahestinn. Það eru gerðar sömu kröfur,“ útskýrir Brynjar Karl.
Og hann útskýrir málið frekar:
„Ég hef verið með stelpur sem eru með heilalömun, allar stærðir og gerðir. Þú mætir þarna, þetta er bara stundum eins og barinn í Star Wars, allra þjóða kvikindi og eitthvað. Og ég er bara „equal opportunity bully“. Það eru bara allir jafn mikilvægir hérna,“ segir hann.
Hann telur að íþróttir séu rétti vettvangurinn í dag til þess að valdefla krakka og að þar sé mögulegt fyrir þau að vinna í sjálfum sér og tilfinningum sínum.
„Og ég vildi óska þess að fólk myndi fara að átta sig á. Og þá spyr fólk sig, af hverju er þetta svona. Það er vegna þess að [] ég man bara eftir því að ég var kominn í byggingavinnu og kominn á sjóinn og kominn í sveit, 11, 12, 13, 14 ára og auðvitað var margt mjög skrítið við það og auðvitað var margt mjög skrítið við það en það voru ákveðnir hlutir sem mótuðu mann. Og mér finnst að íþróttirnar í dag, miðað við það sem ég sé í námi barnanna minna, jú þau geta orðið skilvirk og unnið í þessum IQ tengdu hlutum en þegar þú ferð að vinna með tilfinningagreind og sjálfan þig og efla þig þá eru íþróttirnar bara besti staðurinn til að gera það ef þetta er gert almennilega.“
Fyrir dyrum stendur að íþróttafélagið Aþena missi aðstöðu sína í Austurbergi í Breiðholti og hafa borgaryfirvöld gefið misvísandi skilaboð um hvað valdi því. Hefur Skúli Helgason, formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur meðal annars sagt að Brynjar Karl þurfi að undirrita svokallaða mannréttindayfirlýsingu borgarinnar.
Brynjar Karl segir að ef borgin endurnýi ekki samning sinn við Aþenu boði það endalok félagsins. Í ítarlegu viðtali í Spursmálum fer hann yfir sögu félagsins og þá aðferðafræði sem hann beitir til þess að draga börn að íþróttinni og halda þeim að þjálfuninni.
Þar er engin tæpitunga töluð og er það allt í anda þess hvernig Brynjar Karl hagar þjálfun sinni og samskiptum við fólk yfirleitt. Sjón er sögu ríkari.
Skúli Helgason átti ekki kost á því að mæta til viðtals með Brynjari Karli, enda voru þeir boðaðir á vettvang Spursmála með skömmum fyrirvara. Skúli hefur hins vegar veitt ádrátt um að hann mæti til samtals við þáttarstjórnanda í komandi viku.
Viðtalið við Brynjar Karl má sjá og heyra í heild sinni hér að neðan: