Eftirlýstur maður grunaður um vændiskaup

Maðurinn reyndist eftirlýstur.
Maðurinn reyndist eftirlýstur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann grunaðan um vændiskaup í Laugardalnum í dag, að því er segir í dagbók lögreglu.

Kom þá í ljós að maðurinn reyndist eftirlýstur. Ekki er tekið fram fyrir hvað hann er eftirlýstur en hann var vistaður í fangaklefa.

Í dagbókinni segir einnig að einn hafi verið handtekinn í miðborg Reykjavíkur grunaður um líkamsárás, vopnalagabrot og fyrir að hafa fíkniefni í vörslum sínum. Hann var vistaður í fangaklefa.

Þá segir einnig að einn hafi verið kærður fyrir húsbrot í sundlaug í miðborginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »