Veiðigjaldafrumvarpið gæti tekið breytingum

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/María

Talið er að forsendur þær sem reiknaðar eru í uppsjávarfisknum, hvað snertir veiðigjaldafrumvarpið, séu ekki réttar. Fara þarf yfir þau sjónarmið og meta hvort forsendur séu réttar eða ekki. Þetta getur skipt mjög miklu máli.

Þetta er haft eftir Víði Reynissyni, þingmanni Samfylkingarinnar, í umfjöllun Eyjafrétta, um frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækkun veiðigjalda.

Kemur fram að Víðir og oddvitar flestra flokka á þingi hafi nýlega átt fund með fulltrúum Útvegsbændafélags Vestmannaeyja. Sagði Víðir fundinn hafa gengið mjög vel. Farið hafi verið vel yfir málin í mjög hreinskiptum umræðum.

„Þarna var engin pólitík. Þarna var bara verið að fara yfir hlutina eins og þeir eru og þau voru búin að vinna ansi góðar greiningar á bæði þessum sjávarútvegsfyrirtækjum hér í Eyjum og líka þessum fjölmörgu þjónustufyrirtækjum sem sjávarútvegurinn skiptir nánast öllu fyrir. Það eru auðvitað skiptar skoðanir með forsendur í þessum hlutum og hversu bratt á að fara. Það var alveg ómetanlegt að fá fram þessi sjónarmið,“ er haft eftir Víði í umfjölluninni.

„Menn útiloki ekki neitt“

Spurður af ritstjóra Eyjafrétta hvort hann muni kynna þingflokki Samfylkingarinnar það sem fram kom á fundinum sagðist Víðir þegar hafa gert það auk þess að hafa rætt við nefndina sem fjallar um málið.

„Svo erum við einnig búin að fá kynningu frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga um málið og skoða greiningarnar þeirra. Ég held að það sé mikill vilji til þess að setjast yfir málið og fara vel yfir þessi gögn og útreikninga. Stóra málið núna er að skoða alla þessa útreikninga og fara yfir forsendurnar þar á bak við. Þannig að við sjáum hvort að niðurstaðan í frumvarpinu er rétt eða hvort að við þurfum að breyta henni eitthvað. Það er allt opið núna,“ er haft eftir Víði.

Aðspurður sagði Víðir það ekki ólíklegt að frumvarpið taki einhverjum breytingum á milli umræða. Meginvinnan fari fram í nefndinni þó að skoðanaskiptin fari fram í þingsalnum.

„Það er þannig að þeir sem sitja í nefndinni fá öll gögnin og geta kallað eftir frekari gögnum. Það er eins og menn nefndu á þessum fundi þá telja menn að þær forsendur sem reiknaðar eru í uppsjávarfisknum séu alls ekki réttar. Það þarf eðlilega að fara yfir þau sjónarmið og meta hvort að forsendurnar séu réttar eða ekki. Þetta getur skipt mjög miklu máli. Í mínum huga er mikilvægt að fara vel yfir öll þessi gögn og að menn útiloki ekki neitt í þeirri vinnu.“

Það sem sagt var í kosningabaráttunni

Ritstjóri Eyjafrétta gerði kosningabaráttuna að umræðuefni og minnti á að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefði á þeim tíma sagt að þetta ætti að gera í skrefum á tíu árum. Þá hafi Víðir sagt stefnu Samfylkingarinnar vera að engar byltingar yrðu gerðar í kerfinu.

Rætt hafi verið við útgerðirnar að taka samtal um veiðigjöldin og það mætti ekki koma niður á rekstrarhæfni útgerðarinnar. Samfylkingin hefði vilyrði frá útgerðunum um að þær væru tilbúnar að taka samtalið ef Samfylkingin kæmist í ríkisstjórn.

Sagði Víðir þetta hafa verið það sem Samfylkingin hafi farið með inn í samtalið við myndun nýrrar ríkisstjórnar en innan flokkana séu skiptar skoðanir um hve hratt eigi að ganga í þessu.

„Það er eins og ég segi, málið er enn í meðförum þingsins. En við höfum okkar sýn og eins okkar stefnu, en eins og ég sagði á fundinum að þá sáum við þetta gerast á lengri tíma. Það er hins vegar þannig að þegar menn eru í samstarfi í ríkisstjórn að þá þarf stundum að gera málamiðlanir. Við vildum þá bara fá frumvarpið fram og fá öll gögn fram til að geta þá unnið málið í þingnefndunum og við sjáum svo hver niðurstaðan verður úr því.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »