Skógarmítillinn kominn á kreik

Skógarmítill berst til landsins með farfuglum.
Skógarmítill berst til landsins með farfuglum. Ljósmynd/Erling Ólafsson

Það sem af er sumri hafa nokkur tilfelli um skógarmítla verið tilkynnt til Náttúrufræðistofnunar og búast má við enn fleiri tilfellum í byrjun júlí.

Matthías Svavar Alfreðsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, segir í samtali við mbl.is að hann eigi von á fleiri mítlum eftir því sem lengra líður á sumarið.

Á árunum 2015-2019 bárust 168 mítlar til Náttúrufræðistofnunar og Keldna. Næstu fimm árin eftir það bárust aðeins 105.

Geta borið bakteríu sem veldur Lyme-sjúkdómi

Í ár hafa borist fjórir innsendir mítlar, þó hefur Matthías séð myndir af mítlum á samfélagsmiðlum sem ekki hafa ratað til Náttúrufræðistofnunar.

Skógarmítlar hafa fundist um land allt en finnast helst í trjálendi, skóglendi eða í skógarjaðri.

Skóg­armítl­ar geta borið Bor­relia burgdorferi-bakt­eríu sem get­ur borist í menn við bit mít­ils­ins, en hún veld­ur Lyme-sjúk­dómi í mönn­um.

Borrelia burgdorferi fannst í 9,9% skógarmítla hérlendis samkvæmt nýlegri rannsókn Náttúrufræðistofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »