Samræmt mat mikilvægt

Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra.
Lilja D. Alfreðsdóttir, fyrrverandi menntamálaráðherra. mbl.is/Karítas

Við innritun nemenda í framhaldsskóla fæst mest gagnsæi við að styðjast við námsárangur að mati Lilju Alfreðsdóttur fv. menntamálaráðherra. Hún telur samræmt námsmat í grunnskólum „jafnréttis- og sanngirnismál“.

Þetta segir Lilja í tilefni frumvarps Guðmundar Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra, þar sem m.a. kemur fram að heimilt verði við innritun í framhaldsskóla að líta í auknum mæli til annarra þátta en námsárangurs, t.d. sjónarmiða sem tengjast skólasamfélagi viðkomandi skóla til að tryggja fjölbreytni í skólahópum.

„Það er afar mikilvægt að það sé samræmt mat á stöðu nemenda í grunnskóla. Þess vegna var lagt til í minni tíð sem menntamálaráðherra að samræmdum matsferli væri hrint í framkvæmd í grunnskólum landsins,“ segir Lilja og bætir við að markmið hans sé að draga upp nákvæma mynd af stöðu nemenda.

Lilja segir að stöðu- og framvindupróf Matsferils séu stöðluð. „Efnisinnihald, matsreglur og reglur um fyrirlögn prófanna eru fyrir fram ákveðin,“ segir hún og bætir við að fyrirlögn verði sveigjanlegri en í tilfelli gömlu samræmdu prófanna. Þannig verði miðað við prófaglugga, ekki ákveðinn dag.

„Grunnskólar eru skyldugir til þess að leggja stöðu- og framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði fyrir í 4., 6. og 9. bekk. Að öðru leyti er notkun stöðu- og framvinduprófa valfrjáls. Skólar geta því lagt prófið fyrir oftar, ef þeir kjósa það. Matsferillinn er því samræmdur mælikvarði á stöðu nemenda í grunnskóla í anda PISA-prófanna, þ.e. hann prófar ekki ákveðið efni sem sett er fyrir eins og gert var í gömlu samræmdu prófunum, heldur metur getu nemenda út frá prófabanka,“ bætir hún við.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, lagði fram frumvarp í febrúar um að Matsferillinn yrði tekinn í notkun. Lilja fagnar því að Matsferillinn sé loksins að komast til framkvæmda.

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »