„Margir voru glaðir þegar kjararáð var lagt niður, en þá kom bara reikningsformúla í staðinn,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður stéttarfélagsins VR, í samtali við mbl.is, innt eftir skoðun sinni á 5,6 prósenta hækkun þingfararkaups og annarra launa æðstu embættismanna ríkisins sem gildi tekur um komandi mánaðamót.
Ritaði Halla um hækkunina á Facebook-síðu sína í gær eins og mbl.is fjallaði um þá síðdegis, en í pistli Höllu mátti meðal annars lesa eftirfarandi:
Á sama tíma þarf almennt launafólk að sætta sig við 3,5% launahækkun á grundvelli kjarasamninga sem áttu að fela í sér einhvers konar sameiginlega ábyrgð, við værum jafnvel öll um borð í sama báti. En það erum við ekki, frekar en fyrri daginn.
Bendir hún á það í því samtali við mbl.is, sem hér segir af, að launahækkanir embættismanna séu sjálfvirkar óháð því hvað gangi á í þjóðfélaginu.
„Kjarasamningar, sem undirritaðir voru á almennum vinnumarkaði, gerðu ráð fyrir hóflegum launahækkunum, sem byggir að vísu á kenningum sem ég kvitta ekki upp á – um að launahækkanir hafi einhver voðaleg áhrif á verðbólguna. Það breytir því ekki að á meðan allt almennt launafólk undirgengst þetta hækka kjörnir fulltrúar meira,“ heldur Halla áfram og þetta hreyfi við fólki.
Hvaða skilaboð senda stjórnvöld út í þjóðfélagið með þessu fyrirkomulagi?
„Þetta er náttúrulega bundið í lög sem Alþingi setti sjálft,“ svarar formaðurinn, „mér finnst allt í lagi að spyrja hvort ekki sé eðlilegra að laun æðstu ráðamanna taki breytingum samhliða hækkunum í kjarasamningum.“
Æðstu embættismenn þurfi almennt ekki að berjast fyrir sínum kjörum eins og venjulegt launafólk heldur fljóti einhvern veginn ofan á baráttu annarra. „Mér finnst alveg mega velta þessu upp. Nógu há eru launin, þannig að jafnvel þótt eitthvert launaskrið yrði og þau hækkuðu ekki í takt við það væri ekki verið að fara gríðarlega illa með þennan hóp fólks,“ segir Halla og gerir umvandanir seðlabankastjóra að sínu lokayrkisefni í viðtalinu.
„Laun seðlabankastjóra – sem gerir ekki annað en að móralisera yfir venjulegu fólki og reyna að taka peninga úr umferð með því að kreista heimilishaldið hjá því – taka líka hækkunum eftir þessu, þar er ekki verið að huga að neinni hófsemd,“ segir Halla Gunnarsdóttir VR-formaður að lokum.