Dregið hefur úr úrkomu á Tröllaskaga en áfram er í gildi óvissustig á Ólafsfirði vegna skriðuhættu.
Þetta segir Tómas Jóhannesson, ofanflóðasérfræðingur á skriðuvakt Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
Eins og greint var frá fyrr í kvöld þá var íbúum í þremur götum á Ólafsfirði ráðið frá því að dvelja í herbergjum með glugga eða dyraop sem snúa upp í fjallshlíðina í kvöld og nótt vegna skriðuhættu.
„Það dró úr úrkomunni bæði á Ólafsfirði og Siglufirði og það hafa ekki borist nein tíðindi um skriður. Það hefur dregið úr úrkomunni líka í Útkinn,“ segir hann en þar urðu skriðuföll árið 2021.
Það er áframhaldandi úrkoma en hún er ekki jafn áköf og hún var. Óvissustig er þó áfram í gildi.
„Við vonum að sá viðbúnaður sem gripið hefur verið til dugi og gerum ekki ráð fyrir frekari aðgerðum en gripið hefur verið til,“ segir Tómas.