Vegurinn um Víkurskarð er lokaður og verður staðan á honum tekin síðar í dag en Vegagerðin vekur athygli á vef sínum, umferðin.is, á gulum og appelsínugulum viðvörunum frá Veðurstofu Íslands sem eru nú í gildi um allt land og töluverðar líkur á samgöngutruflunum.
Reikna má með hvassviðri og ofankomu, slyddu eða snjókomu og hálku til fjalla. Vegna veðurs gæti komið til lokana á vegum með skömmum fyrirvara.
Varað er við miklum vindhviðum á Kjalarnesi og því ekki æskilegt að bílar sem taka á sig mikinn vind séu þar á ferð. Varasamar hviður verða á suðvestanlands fram eftir degi s.s. á Kjalarnesi, undir Ingólfsfjalli, í Selvogi og á sunnanverðu Snæfellsnesi.
Á Bröttubrekku er éljagangur og mjög hvasst og á Holtavörðuheiði er hálka og éljagangur.
Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir og éljagangur er víða á Fjallvegum. Hálkublettir eru á Þröskuldum. Snjóþekja og éljagangur er á Gemlufallsheiði og í Tungudal.
Á Norðurlandi er þæfingsfærð Almenningum á Siglufjarðarvegi einnig á Skagavegi. Krapi er Í Langadal en snjóþekja og éljagangur á Öxnadalsheiði, Þverárfjalli og í Ólafsfjarðarmúla en hálkublettir á Ólafsfjarðarvegi.
Hálkublettir eru á Mývatnsheiði, Mývatnsöræfum en krapi og éljagangur Möðrudalsöræfum og Hellisheiði eystri. Hálkublettir og éljagangur er á Hófaskarði en snjóþekja og éljagangur á Sandvíkurheiði.
Á Austurlandi er ófært á Öxi og á Breiðdalsheiði og þá er krapi og éljagangur á Fagradal, Fjarðarheiði, Borgarfjarðarvegi og Vatnsskarði eystra.
Óvissuástand vegna hvassviðris er á leiðinn frá Hamarsfirði og allt suður að Vík og getur vegum lokað með stuttum fyrirvara. Á þessari leið er óveður og þar er í gangi mjúklokun sem þýðir að stórum bílum sem taka á sig mikinn vind eru stoppaðir á meðan mesta veðrið gengur yfir.