Grímur: Þolinmæðin virðist hafa minnkað

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar.
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Karítas

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, vakti máls á málefnum fólks af erlendum uppruna á Alþingi í dag en hann sagði að þolinmæði í garð þeirra sem hingað kæmu virtist hafa minnkað. Grímur benti á að langflestir þeirra sem kæmu til Íslands yrðu nýtir samfélagsþegnar.

Þetta kom fram undir liðnum störf þingsins í dag. Grímur gerði m.a. mótmæli sem fóru fram á Austurvelli um liðna helgi að umtalsefni, en þá kom saman hópurinn „Ísland þvert á flokka“ þar sem opnum landamærum var mótmælt.

Amast að fólki með misjafnan bakgrunn

„Í kjölfar atburða um síðastliðna helgi hlýtur sú spurning að vakna, gerir það alla vega hjá mér, hvað það er við fólk af erlendum uppruna sem veldur því að fólk safnast saman og mótmælir veru þess á Íslandi og raunar víðar. Útlendingar eru fólk sem hefur sest hér að eftir að hafa fundið hér ástina, börn sem hafa verið ættleidd frá útlöndum, fólk sem hingað hefur komið vegna þess að hér vantaði vinnuafl, fólk sem langaði að búa á Íslandi vegna þess að Ísland er fallegt land og hér er öruggt umhverfi og fólk sem hingað leitar eftir vernd, svo nokkur dæmi séu nefnd,“ sagði Grímur.

„Er amast við fólki með þennan misjafna bakgrunn aðeins vegna þess að það lítur út á einhvern hátt öðruvísi út en fólk sem borið er hér og barnfætt? Langflest þeirra sem til Íslands koma verða nýtir samfélagsþegnar, ala önn fyrir fjölskyldu og leggja til hinna sameiginlegu sjóða eins og til er ætlast,“ bætti hann við.

Hælisleitendur viðkvæmasti hópurinn

Hann tók fram að hælisleitendur væru viðkvæmasti hópurinn og móttaka þeirra þyrfti að byggjast á mannúð, virðingu og réttlæti. Hann tók fram að móttaka hælisleitenda væri flókið úrlausnarefni og það væri ekki þannig að allir sem sæktu um hæli hér á landi fengju það.

„Það er hluti af mannúðlegri móttöku að umsækjendur fái sem allra fyrst úrlausn sinna mála og sé ekki haldið í óvissu um langt skeið. Fái hælisleitandi hér vernd eru honum tryggð viðeigandi úrræði svo að inngilding hans í íslenskt samfélag geti hafist. Öll sem hingað koma, ekki bara hælisleitendur, þarf að inngilda í íslenskt samfélag. Inngilding felur það í sér að einstaklingur aðlagast samfélagi sem tekur tillit til hans bakgrunns og sérstöðu. Þolinmæði í garð þeirra sem hingað koma virðist hafa minnkað. Einföld skilaboð um afbrot leigubílstjóra og stjórnlaus landamæri geta orðið til þess að fólk setur samasemmerki á milli þess sem aflaga fer og útlendinga,“ sagði þingmaðurinn.

Mega ekki klára tankinn og örmagnast

„Látum það ekki gerast að fólk sem talar fyrir því að við umgöngumst hvert annað með virðingu klári tankinn og örmagnist. Við sem hér á hinu háa Alþingi sitjum þurfum að finna hinn sameiginlega meðalveg sem við viljum feta í þessum efnum,“ sagði Grímur að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »