Íslensk stjórnvöld gripu of seint inn í

Margrét Valdimarsdóttir
Margrét Valdimarsdóttir mbl.is

Stjórnvöld hefðu átt að grípa mun fyrr inn í vegna fyrirsjáanlegs skorts á fangelsisrýmum, að mati Margrétar Valdimarsdóttur afbrotafræðings.

Undanfarin ár hefur landsmönnum fjölgað umtalsvert á sama tíma og alvarlegum brotum hefur fjölgað og dómar hafa þyngst. Margrét segir í samtali við Morgunblaðið í dag að plássleysi í lokuðu fangelsunum spili stórt hlutverk í því hvenær fangar séu færðir í opin fangelsi. Hinn stóri þátturinn sé svo hugmyndir um betrun fanga, sem séu svipaðar á Íslandi og í öðrum norrænum ríkjum.

Þá sýni rannsóknir að lengri og harkalegri fangelsisvist leiði frekar til þess að fangar snúi sér aftur að afbrotum að afplánun lokinni. 

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »