Höskuldur laut í lægra haldi

Höskuldur Þórhallsson.
Höskuldur Þórhallsson. mbl.is/Golli

Höskuldur Þór Þórhallsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, tapaði máli gegn Magnúsi H. Breiðfjörð Traustasyni og þarf að greiða honum 1,45 milljónir í málskostnað eftir að hafa krafist ógildingar á úrskurði úrskurðarnefndar lögmanna þar sem honum var veitt áminning.

Áminningin var veitt vegna brota á lögmannalögum og siðareglum, meðal annars fyrir að halda fjármunum eftir í langan tíma sem átti að nota til greiðslu erfðafjárskatts úr dánarbúi og fyrir að veita úrskurðarnefnd rangar upplýsingar.

Málið á rætur að rekja til opinberra skipta á dánarbúi þar sem Höskuldur var skipaður skiptastjóri. Erfingjar kvörtuðu yfir seinagang í málinu, meðal annars við sölu fasteignar og úthlutun eigna. Þrátt fyrir að skiptum hafi formlega verið lokið í febrúar 2022, var erfðafjárskatti ekki skilað fyrr en 31. janúar 2023 – eftir að innheimtubréf barst erfingjum frá Skattinum og kvörtun hafði verið lögð fram til úrskurðarnefndar lögmanna.

Hélt eftir skattfé í tæpt ár

Í úrskurði nefndarinnar kemur fram að Höskuldur hafi haft allar nauðsynlegar upplýsingar til að ganga frá greiðslunni strax í febrúar 2022. Hann hafi því brotið gegn 18. og 27. gr. laga um lögmenn og 80. gr. laga um skipti á dánarbúum.

Höskuldur hélt því fram í greinargerð til nefndarinnar að hann hefði greitt skattinn áður en kvörtun barst, en síðar kom í ljós að greiðslan fór fram sex dögum eftir að kvörtunin barst. Taldi nefndin að um væri að ræða rangar upplýsingar sem væru til þess fallnar að villa um fyrir nefndinni.

Taldi brotið gegn réttindum sínum

Höskuldur stefndi málinu fyrir Héraðsdóm Suðurlands og krafðist þess að úrskurðurinn yrði ógiltur. Hann hélt því fram að úrskurðarnefndin hefði ekki lögsögu yfir honum sem skiptastjóra og að brotið hefði verið gegn meðalhófi, andmælarétti og lögmætisreglu.

Höskuldur taldi úrskurðinn efnislega rangan og vega gróflega að stjórnarskrárvörðu atvinnufrelsi sínu og farið langt út fyrir heimildir sínar.

Dómurinn féllst á það með Höskuldi að úrskurðarnefnd lögmanna hefði brotið gegn andmælarétti hans að því leyti að honum hefði ekki verið gefinn kostur á að svara þeim ásökunum í niðurstöðukafla úrskurðarins um að hann hefði veitt rangar upplýsingar og reynt að villa um fyrir nefndinni.

Hins vegar taldi dómurinn að það brot hefði ekki haft áhrif á efnislega niðurstöðu nefndarinnar og hafnaði öðrum málsmeðferðarástæðum stefnanda.

Ábyrgðin um greiðslu hjá Höskuldi

Héraðsdómur Suðurlands hafnaði málsástæðum Höskuldar og taldi ljóst að ábyrgðin á greiðslu erfðafjárskatts hefði verið hjá Höskuldi.

Dómurinn taldi að ekkert í lögum styddi fullyrðingu um að úrskurðarnefnd lögmanna hefði ekki lögsögu í málinu. Þá var ekki fallist á að brotið hefði verið gegn andmælarétti í þeim mæli að það hefði áhrif á niðurstöðu málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »