Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í héraðsdómi í sextán mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða tæplega 200 milljón króna sekt vegna skattabrota á árunum 2017 til 2019.
Maðurinn, Gísli Ingi Gunnarsson, var skráður framkvæmdastjóri, stjórnarmaður og prókúruhafi þriggja fyrirtækja sem nú hafa verið úrskurðuð gjaldþrota.
Samkvæmt ákæru greiddi hann ekki virðisaukaskatt yfir þriggja ára tímabil fyrir tvö fyrirtækjanna upp á samtals 20 milljónir. Þá tilgreindi hann ekki úttektir úr félögunum upp á 106,2 milljónir og greiddi þar af leiðandi ekki tekjuskatt og útsvar upp á 46,1 milljón vegna þess.
Gísli játaði brot sín fyrir dómi og teljast brot hans sönnuð.
Auk refsingarinnar var Gísla gert að sæta atvinnubanni í tvö ár, en með því er honum bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð, sitja í stjórn eða starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun slíkra félaga.
Fram kemur í dómi Héraðsdóms Suðurlands að Gísli hafi sjö sinnum hlotið refsidóma frá því 1987. Meðal annars hlaut hann rúmlega tveggja ára dóm í Finnlandi árið 2006 fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Aftur hlaut hann rúmlega tveggja ára dóm í Finnlandi árið 2008 fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Árið 2013 var hann fundinn sekur um líkamsárás, einnig í Finnlandi.
Síðan 2018 hefur hann hlotið þrjá dóma á Íslandi áður en nýjasti dómurinn féll. Var það vegna umferðarlagabrota árið 2018, skjalabrots árið 2023 og fyrir fjársvik árið 2022. Í síðastnefnda tilvikinu hlaut Gísli hálfs árs dóm fyrir að hafa svikið út vörur úr Bauhaus upp á 2,3 milljónir. Fékk hann starfsmann fyrirtækisins til að útbúa tilhæfulaus tilboð og sótti Gísli síðan vörurnar án þess að hafa greitt fyrir.