Gular viðvaranir eru byrjaðar að taka gildi á landinu. Búast má við slyddu, snjókomu og hvassviðri víðs vegar næsta sólarhringinn. Að sögn veðurfræðings á Veðurstofu Íslands kæmi ekki á óvart ef vegum milli landshluta yrði lokað þegar líður á daginn.
Greint hefur verið frá að viðvaranirnar munu vara fram eftir þriðjudegi.
Fyrstu gulu viðvaranirnar tóku gildi klukkan 10 á Norðvesturlandi og núna klukkan 12 á Norðausturlandi.
Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir slydduhraglanda vera kominn á fjallvegi Norðurlands á hærra liggjandi svæðum sem muni svo aukast með deginum og kvöldinu.
Gul viðvörun muni taka gildi á Austurlandi klukkan 14, Austfjörðum klukkan 18 og miðhálendinu klukkan 21. Appelsínugular viðvaranir taki svo gildi á Austfjörðum á miðnætti, Suðausturlandi klukkan 1 í nótt og Norðaustur- og Austurlandi klukkan 3 í nótt.
„Svo verður bara restin af landinu gul undir morgun í fyrramálið,“ segir Óli í samtali við mbl.is.
Aðspurður segir hann að slydda, snjókoma og rigning muni verða til staðar á Norðurlandi. Loft taki svo að hlýna á morgun en á sama tíma muni úrkoma aukast og má því búast við leysingum.
„Með því að það hlýni og verði rigning ofan í það þá leysir það þann snjó sem kemur í nótt og í fyrramálið þannig að það verður ansi mikil leysing þá í kjölfarið.“
Á Suðausturlandi og vestanverðu landinu verði hins vegar lítil úrkoma en mikið hvassviðri.
„Það er svo sem ekki gul viðvörun enn þá á höfuðborgarsvæðinu, við erum enn þá að velta fyrir okkur hvort þess þurfi eða ekki. En fólk er náttúrulega búið að setja inn garðhúsgögnin og trampólínin og allt það. Þetta er alveg vindur til þess að þetta allt fari af stað.“
Jafnframt mælir veðurfræðingurinn að fólk sem hyggist keyra á milli landshluta bíði með það í bili, þá sérstaklega þeir sem eru á fólksbílum með sumardekkjum, og nefnir að ekki kæmi á óvart ef vegalokanir færu að sjást þegar líður á kvöldið.
Hvað má búast við að þetta standi yfir lengi og við getum farið að sjá aftur eitthvað eilítið sumarveður?
„Ekki í þessari viku. Það er norðlægt allavegana fram á laugardag, það er reyndar ágætis veður á laugardaginn en ekki hlýtt. Svo er líklega næsta lægð á sunnudaginn en hún mun koma með mildara lofti þannig að það verður þá bara rigning en það er samt skárra en þetta norðanhret sem kemur núna.
Það eru ekki alveg í kortunum nein hlýindi en það vissulega hlýnar þegar líður á vikuna, en það gerist hægt og rólega og lítið í einu. Fólk mun líklega horfa til baka og sjá þennan maímánuð í hillingum einhvers staðar.“