Samtals var 114 starfsmönnum sagt upp í þremur hópuppsögnum í maí. Flestum starfsmönnum var sagt upp hjá kísilveri PCC á Bakka, en þar var 80 starfsmönnum sagt upp. Til viðbótar var 34 sagt upp í tveimur uppsögnum á sviði matvæla.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar fyrir maí.
Eins og greint hefur verið frá hefur kísilverið tilkynnt um tímabundna rekstrarstöðvun frá miðjum júlí og var 80 manns sagt upp samhliða því.
Óskaði fyrirtækið eftir því að stjórnvöld myndu skoða markaðsaðstæðurnar sem fyrirtækið glímdi við vegna innflutnings á kísilmálmi frá Kína sem fyrirtækið segir niðurgreiddan og hafa mikil áhrif á markaðsverð hér á landi. Kærði fyrirtækið innflutning á kísilmálmi á undirverði til fjármála- og efnahagsráðuneytisins, auk þess sem óskað var eftir verndartollum.
Í síðustu viku sagði fjármálaráðherra að meðferð máls PCC hjá ráðuneytinu yrði flýtt eins og mögulegt er.