Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo vegna gruns um brot á vopnalögum á tónleikum.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem greint er frá verkefnum lögreglu frá klukkan 17 í gær til 5 í morgun. Ekki kemur fram í dagbókinni um hvaða tónleika hafi verið að ræða. Handtökurnar fór fram í umdæmi lögreglustöðvar eitt, en hún sinnir verkefnum í stórum hluta borgarinnar og á Seltjarnarnesi.
Annar hinna handteknu var laus að lokinni skýrslutöku. Ekki kemur fram hvers konar vopn hann bar á tónleikunum. Hinn aðilinn bar eggvopn og var vistaður í fangaklefa vegna málsins.
Þá var óskað aðstoðar lögreglu vegna einstaklings sem kvaðst hafa orðið fyrir líkamsárás á tónleikum fyrr um kvöldið. Málið er í rannsókn hjá lögreglu.
Eins og mbl.is hefur greint frá voru þrír fluttir á sjúkrahús af tónleikum FM95BLÖ í gærkvöldi. Tónleikarnir voru haldnir í Laugardalshöll, en lögreglustöð eitt sinnir meðal annars útköllum í Laugardal.