„Við erum samherjar í því að vilja að þetta félag geti áfram starfað og gengt mikilvægu starfi uppi í Breiðholti.“
Þetta segir Skúli Helgason, formaður menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkur, um mál körfuboltafélagsins Aþenu í samtali við mbl.is.
Rekstarsamningur um rekstur íþróttahússins Austurbergs milli Reykjavíkurborgar og íþróttafélagsins rann út á laugardaginn en Skúli segir vilja vera til staðar af borgarinnar hálfu til að semja að nýju. Þjálfari Aþenu Brynjar Karl Sigurðsson, hefur stigið fram opinberlega og sagt að flest stefni í að starfsemin muni leggjast af vegna aðstöðuleysis.
Stofnað var til undirskrifalista sem til að skora á borgaryfirvöld að gera áframhaldandi samning um rekstur íþróttahússins í Breiðholti. Tæplega 2800 manns hafa nú skrifað undir.
„Við stefnum að því að lenda þessu mjög fljótlega, vonandi í vikunni,“ segir Skúli.
Hann segir að örugglega verði gerðar ákveðnar breytingar fyrri samningi, „af því að hann var svolítið frávik frá því fyrirkomulagi sem venjulega er í gangi,“ segir Skúli.
„Ég reikna með því að þau verði áfram á sama stað en samningurinn verði með öðrum hætti,“ segir Skúli.