Til ryskinga kom milli nokkura mótmælenda á Austurvelli í dag þar sem tvær andstæðar fylkingar mættust, önnur fylkingin mótmælti opnum landamærum en hin fylkingin var á vegum No Borders á Íslandi.
Þegar fyrsti ræðumaður á vegum Ísland þvert á flokka sem mótmælti opnum landamærum hóf mál sitt reyndu aðgerðarsinnar á vegum No Borders að kaffæra ræðuhöldum með sírenum og gjallarhornshrópum. Reyndu þá aðrir mótmælendur að skerast í leikinn og stöðva sírenuvæl aðgerðasinnanna.
Stympingarnar leystust fljótt upp, en aðgerðarsinnar No Borders héldu uppteknum hætti á meðan mótmælunum stóð. Þó nokkur fjöldi var saman á mótmælunum og báru margir þeirra Íslenska fána.
Fram kom í fréttum í gær að No Borders hyggðust ekki ætla að mæta til fundarins í dag, eftir að samtökin héldu því fram að hvatt hefði verið til ofbeldis gegn þeim á fundinum.
Samtökin höfðu einnig lýst því yfir að mótmælin þeirra yrðu færð yfir á Ingólfstorg af öryggisástæðum.
Þrátt fyrir að lítill hluti mótmælenda hafi tekist á, voru mótmælin að mestu leyti friðsöm.
Meðal þeirra sem ávörpuðu fundinn voru Brynjar Barkarson, meðlimur raftónlistartvíeykisins Club Dub.
Í ræðu sinni fór hann yfir víðan völl, en hann lýsti meðal annars áhyggjum sínum af opnum landamærum sem og slæmum samfélagslegum afleiðingum þess að taka á móti miklum fjölda flóttafólks frá ólíkum menningarsamfélögum.
Hvatti hann einnig til þess að fólk léti í sér heyra og að stjórnmálamenn á Íslandi sýndu meiri kjark til þess að bregðast við þróuninni.