Íslenskur fararstjóri sem ferðast reglulega til útlanda segir að úrvalið í fríhöfninni sé minna en áður en nýlega tók þýska fyrirtækið Heinemann við rekstri fríhafnarinnar. Þannig var hvítvínslaust í komufríhöfninni þegar hann kom frá Frankfurt í gær.
„Auðvitað er stutt síðan þeir tóku við en það er ekki eins og þeir hafi ekki vitað að það stæði til að hefja rekstur þarna,“ segir Emil Örn Kristjánsson.
Hann segist hafa fylgst með af áhuga frá því nýir rekstraraðilar tóku við.
„Konan hafði beðið mig um að grípa með hvítvín en svo var rekkinn alveg tómur. Svo sá ég líka að það var dapurt úrval af viskýi,“ segir Emil.
Hann ferðast nokkrum sinnum í mánuði á milli landa og hann segir að skýringin sem afgreiðsludama hafi gefið fyrir hvítvínsleysinu hafi verið seinkun á gámum.
„Ég hef ferðast töluvert mikið og hef aldrei upplifað þetta áður. Úrvalið á áfengi er slappt. Maður veit ekki hvort þetta sé tímabundið ástand en það er ekki eins og verkefnið hafi dottið úr skýjunum,“ segir Emil.