Aukin umsvif kalla á uppbyggingu

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á vellinum. Flugstöðin var …
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á vellinum. Flugstöðin var stækkuð og þota EasyJet sést hér í hlaði. mbl.is/Þorgeir Baldursson

„Aukin umsvif í fluginu og meiri umferð hér um völlinn kalla eðlilega á frekari uppbyggingu hér,“ segir Hermann Jóhannesson, nýr umdæmisstjóri Isavia á Norðurlandi. Hann tekur formlega við því starfi 1. júlí næstkomandi en er mættur og byrjaður að setja sig inn í mál. Hermann er iðnaðar- og rekstrarverkfræðingur, en vélaverkfræðingur í grunninn og kemur til starfa nú frá Legó í Danmörku.

Á Akureyrarflugvelli er líflegt frá morgni til kvölds. Áætlunarvél Icelandair – sú fyrsta á deginum – lendir rétt fyrir klukkan átta á morgnana, en alls eru fjórar ferðir og stundum fleiri á áætlun dagsins hjá félaginu. Norlandair er líka með mikla starfsemi á svæðinu. Flýgur frá Akureyri til Vopnafjarðar og Þórshafnar. Þá eru Grímsey og Nerlerit Inaat, sem er nærri Scoresby-sundi á Grænlandi, ekki langt undan og tíðar ferðir þangað. Sömuleiðis er Akureyri heimahöfn sjúkraflugs sem Norlandair hefur með höndum samkvæmt samningum við stjórnvöld. Þeir sem sjúkrafluginu sinna eru á sólarhringsvakt. Oft þarf að bregðast skjótt við, eins og Akureyringar þekkja vel þegar flugvélagnýr heyrist að nóttu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »