Verður Guðmundur Fertram forstjóri Coloplast?

Leit stendur nú yfir að næsta forstjóra Coloplast í Danmörku en fyrirtækið komst í fréttir hér á landi þegar það keypti hið ísfirska Kerecis á 1,2 milljarða dollara árið 2023.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis og stofnandi fyrirtækisins, situr í framkvæmdastjórn Coloplast.

Hann er í nýjasta þætti Spursmála spurður út í það hvort hann muni taka við af Kristian Villumsen sem sagt var upp störfum í byrjun maí.

Maður veit aldrei hvað gerist

Ert þú næsti forstjóri Coloplast?

„Nei, það held ég nú ekki en maður veit náttúrulega aldrei hvað gerist. Ég er að hafa gríðarlega gaman af því sem ég er að gera í Kerecis. Ég vakna á hverjum morgni fullur af spennu fyrir deginum og það er ótrúlega gaman að vera tengdur svona lækningavörum og allri virðisaukakeðjunni og fá svo að hitta sjúklinga og lækna sem eru að nota vöruna. Ég geri það alltaf einu sinni í mánuði.“

Áhuginn liggur víðar

Segir Guðmundur Fertram auk þess að hann hafi áhuga á mörgum öðrum málefnum, t.d. innviðauppbyggingu á Vestfjörðum og því hvernig við Íslendingar tryggjum áframhaldandi framúrskarandi lífsgæði í landinu.

Eftir að Villumsen var sagt upp störfum tók stjórnarformaður fyrirtækisins, Lars Rasmussen, tímabundið við starfi forstjóra. Hefur fyrirtækið gefið út að það gefi sér allt að 12 mánuðum til þess að velja eftirmanns Villumsen.

Viðtalið við Guðmund Fertram má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »