Læsisfræðingur segir skipun barna- og menntamálaráðherra á spretthópi sem ætlað er að meta stöðu tilraunaverkefnisins Kveikjum neistann, árangur þess og tækifæri, ófaglega og ólíklega til árangurs. Í hópnum sitja átta manns, þar af fimm tengdir verkefninu.
„Það hefur verið merkilegt að fylgjast með áróðrinum fyrir ágæti þróunarverkefnisinsKveikjum neistann og tilraunum til að koma því í alla skóla, án þess að fyrir árangrinum séu haldbærar sannanir,“ segir Auður Soffíu Björgvinsdóttir í samtali við Morgunblaðið en hún telur að frekar en að einblína á eitt verkefni til þess að bæta læsi innan skólakerfisins þyrfti að leggjast í allsherjarendurskoðun og að fyrsta skrefið í því sé kortlagning á hvaða upplýsingar liggi þegar fyrir og hvað þurfi að gera.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.