Samfélagið í Hrunamannahreppi er harmi slegið eftir að tíu ára drengur lést í hörmulegu slysi á miðvikudag. Fullt var út úr dyrum á bænastund í Hrunakirkju á Flúðum í gær þar sem hans var minnst.
Víglundur Þorsteinsson, fæddur árið 2015, lést þegar dráttarvél féll í Hvítá í Hrunamannahreppi síðdegis á miðvikudag. Drengurinn var ökumaður dráttarvélarinnar en hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Slysið varð skammt frá bænum sem liggur við Hvítá.
Bænastund var haldin um kvöldið og að sögn sóknarprestsins var mjög fjölmennt.
„Fólk stóð meira að segja frammi og úti. Það vildi svo til að það var ótrúlega gott veður þannig að það var líka fólk sem stóð úti. Og það sem var áhrifamikið og sterkt var að hér var fólk lengi eftir athöfnina fram eftir kvöld úti í kirkjugarði að tala saman og taka utan um hvert annað,“ segir séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í Hrunaprestskalli, í samtali við mbl.is.
„Þetta var stund sem var mikilvæg fyrir okkur öll,“ bætir hann við.
Hann segir að samfélagið allt sé harmi slegið. „Þetta snertir hvert einasta heimili í sveitinni,“ segir Óskar. „Hér þekkja allir alla. Þessi drengur var hér stór partur af lífi okkar svo margra.“
Hann segir samfélagið finni styrk í slíkum hörmungum. Það sé gott að búa á stað þar sem allir eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum þegar á reynir.
Samverustund var haldin í félagsheimilinu á Flúðum í morgun með skólasystkinum Víglunds og foreldrum þeirra, sem eru vitaskuld harmi slegin. Presturinn segir að þungt hafi verið yfir skólabörnunum.
„Það er svo skrítið í svona litlum sveitarskóla, þetta er ekki bara bekkurinn hans og bekkurinn við hliðina á, heldur er allur skólinn sleginn út við svona tíðindi,“ segir hann.
„Það er það sem er svona sérstakt í svona litlu samfélagi. Hann var náttúrulega stór partur af skólanum og skólastarfið er, eins og maður segir, lamað.“
Þess vegna sé mikilvægt að skapa vettvang þar sem fólk geti komið saman og bæði grátið saman og tekið utan um hvort annað.