Leit frestað: Staðan endurmetin á morgun

Staðan verður endurmetin í fyrramálið.
Staðan verður endurmetin í fyrramálið. mbl.is/Hákon

Leit að manninum í sjónum við Fiskislóð var frestað á tíunda tímanum í kvöld og verður staðan endurmetin í fyrramálið. 

Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. 

Töluverður fjöldi viðbragðsaðila kom að leitinni í dag eftir að tilkynning frá sjónarvottum barst um að sundmaður væri í sjónum. Leit hófst rétt fyrir klukkan 17 í dag. 

Á meðal þeirra sem komu að leitinni voru lögregla, slökkvilið, björgunarsveitarmenn, kafarar frá sérsveitinni og þyrla Landhelgisgæslunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
OSZAR »